Farooqabad skólinn

Tæplega 200 börn stunda nám í 1.–10. bekk í skóla sem var stofnaður fyrir fjölskyldur sem lifa undir fátæktarmörkum.

Farooqabad er allstór bær í Sheikhupura-héraði og þar býr fólk af öllum efnahagsstigum, frá mjög ríkum til mjög fátækra. Farooqabad skólinn var stofnaður til að mæta þörfum fjölskyldna og barna sem lifa undir fátæktarmörkum og hafa ekki efni á að senda börn sín í skóla.

Foreldrar og forráðamenn flestra barnanna í skólanum starfa sem heimilishjálp, sem daglaunafólk sem vinnur þegar vinnu er að fá, við múrsteinsbrennslur, sem vinnufólk hjá landeigendum og í öðrum láglaunastörfum. Margir kikna undan álagi risavaxna skulda eftir að hafa tekið lán vegna fjölskylduþarfa og neyðast til að vinna við óviðunandi aðstæður.

Eina leiðin út úr þessum erfiðu aðstæðum, fyrir komandi kynslóðir, er að hljóta formlega menntun og fá gott starf. Ef foreldrar og forráðamenn ættu einir að standa straum af menntun barna sinna myndu þeir frekar kjósa að senda börnin til vinnu. Þeir eru fúsir til að senda börn sín í skóla svo lengi sem það verður ekki byrði á þeirra tekjum sem eru þegar af skornum skammti. Farooqabad skólinn er mikil blessun fyrir tæplega 200 börn sem stunda þar nám í 1.–10. bekk.

Til baka í skólana

Myndir frá skólanum

Farooqabad skólinn


Vitnisburðir

Raddir frá Pakistan


Ég kem úr stórri fjölskyldu og foreldrar mínir höfðu ekki efni á að senda mig og fjögur systkini mín í skóla. Við bjuggum ekki langt frá skólanum í Farooqabad og eftir að foreldrum mínum barst sú vitneskja að börn gætu fengið skólastyrki frá örlátu fólki á Íslandi til...
Nazish Nazish Hjúkrunarfræðingur — Farooqabad skólinn
Eftir að ég lauk grunnskóla í þorpinu mínu virtist draumurinn um áframhaldandi nám óraunhæfur. Ég kem úr sjö systkina hópi og forgangsverkefni foreldra minna var að mæta daglegum þörfum heimilisins, ekki að greiða fyrir menntun okkar. Hversu dökkt sem útlitið var hélt ég áfram að vona að eitthvað...
Najma Najma Gjaldkeri og meistaranemi — Machike heimavistarskólinn
Skólarnir

Aðrir skólar


Chak 96 R/B skólinn

Pakistan  ·  150+ nemendur

Chak 96 R/B skólinn

Skólinn stendur í miðju þorpinu og þjónar fjölskyldum sem búa við kröpp kjör. Tæplega 150 nemendur stunda þar nám.

Gujranwala skólinn

Pakistan  ·  200+ nemendur

Gujranwala skólinn

Í einni af stærstu borgum Pakistans þjónar skólinn um 200 börnum úr samfélögum þar sem meirihluti fjölskyldna lifir undir fátæktarmörkum.

Jaranwala skólinn

Pakistan

Jaranwala skólinn

Skólinn var byggður fyrir fé sem kennarar, starfsfólk og nemendur Borgarholtsskóla söfnuðu, og þjónar nokkrum þorpum í útjaðri borgarinnar.

Styrkja

Lítil framlög hjálpa til við að breyta lífum