Chak 96 R/B skólinn
Skólinn stendur í miðju þorpinu og þjónar fjölskyldum sem búa við kröpp kjör. Tæplega 150 nemendur stunda þar nám.
Á meðan fátækt, óréttlæti og misrétti er við lýði getur ekkert okkar setið hjá. Við rekum skóla í Pakistan og á Filippseyjum fyrir börn sem hefðu annars engan aðgang að námi.
Að elska náungann eins og sjálfan sig — óháð staðsetningu, þjóðerni eða trú.
Norræna barnahjálpin byggir á hinni kristnu meginreglu að „elska náungann eins og sjálfan sig“ og lítur á hvern þann sem við getum mætt þörfum hjá sem náunga okkar, óháð staðsetningu, þjóðerni eða trú.
Við komum á fót og rekum skóla í þróunarlöndum til að veita fátækum börnum menntun sem þau hefðu annars ekki aðgang að.
Við rekum heimili fyrir götubörn og munaðarlaus börn þar sem hvert barn fær sitt eigið rúm, þrjár máltíðir á dag og læknisþjónustu.
Við vinnum gegn fátækt með því að skapa tækifæri til starfsþjálfunar sem leiðir til atvinnu og sjálfstæðis.
Við vinnum gegn kúgun og misrétti stúlkna og tryggjum þeim sama aðgang að námi og öryggi og drengjum.
Við rekum fimm dagskóla og einn heimavistarskóla í Pakistan, auk skóla á Filippseyjum.
Skólinn stendur í miðju þorpinu og þjónar fjölskyldum sem búa við kröpp kjör. Tæplega 150 nemendur stunda þar nám.
Í einni af stærstu borgum Pakistans þjónar skólinn um 200 börnum úr samfélögum þar sem meirihluti fjölskyldna lifir undir fátæktarmörkum.
Skólinn var byggður fyrir fé sem kennarar, starfsfólk og nemendur Borgarholtsskóla söfnuðu, og þjónar nokkrum þorpum í útjaðri borgarinnar.
Skólinn stendur mitt í samfélaginu sem hann þjónar og leysir þar með helstu áhyggjuefni foreldra af ferðakostnaði og öryggi barnanna.
Heimili fyrir þau börn sem mest þurfa á því að halda: eigið rúm, þrjár máltíðir á dag, læknisþjónusta og formleg menntun.
Tæplega 200 börn stunda nám í 1.–10. bekk í skóla sem var stofnaður fyrir fjölskyldur sem lifa undir fátæktarmörkum.
Ég kem úr stórri fjölskyldu og foreldrar mínir höfðu ekki efni á að senda mig og fjögur systkini mín í skóla. Við bjuggum ekki langt frá skólanum í Farooqabad og eftir að foreldrum mínum barst sú vitneskja að börn gætu fengið skólastyrki...
Nazish
Hjúkrunarfræðingur — Farooqabad skólinn
Eftir að ég lauk grunnskóla í þorpinu mínu virtist draumurinn um áframhaldandi nám óraunhæfur. Ég kem úr sjö systkina hópi og forgangsverkefni foreldra minna var að mæta daglegum þörfum heimilisins, ekki að greiða fyrir menntun okkar. Hversu dökkt sem útlitið var hélt...
Najma
Gjaldkeri og meistaranemi — Machike heimavistarskólinn
Ég var í fjórða bekk þegar ég hóf nám í The Light Christian Academy Manapla. Á þeim tíma vann faðir minn sem verkamaður á sykurreyrsökrum og móðir mín hjálpaði honum eins og hún gat, samhliða því að sinna þörfum heimilisins. Með mánaðartekjur...
Jezyl Tumala
Aðstoðarfjármálastjóri — The Light Christian Academy
Skólinn sem opnaði sem leikskóli árið 2011 rekur í dag bæði unglingastig og framhaldsskólastig — og undirbýr nú verknámsdeild.
Það sem hófst með grunni að einni kennslustofu er í dag skólalóð með heimavist, fjölnotasal, skrifstofum og íbúðarhúsum kennara.
Hópar frá Bandaríkjunum, Færeyjum og Íslandi hafa rétt nærliggjandi samfélögum hjálparhönd með vatnsaðstöðu og læknisaðstoð.