Chak 96 R/B skólinn
Skólinn stendur í miðju þorpinu og þjónar fjölskyldum sem búa við kröpp kjör. Tæplega 150 nemendur stunda þar nám.
Skólinn stendur mitt í samfélaginu sem hann þjónar og leysir þar með helstu áhyggjuefni foreldra af ferðakostnaði og öryggi barnanna.
Peshawar skólinn er staðsettur í samfélagi sem er í nokkurri fjarlægð frá borginni. Foreldrar og forráðamenn barnanna starfa við sópun, hreingerningar, heimilishjálp og daglaunavinnu með mjög lágar mánaðartekjur.
Áður en skólinn var stofnaður þurftu börnin að ferðast til borgarinnar í skóla, sem lagði aukna fjárhagslega byrði vegna ferðakostnaðar ofan á há skólagjöld. Ferðirnar fram og til baka sköpuðu einnig öryggisvanda og vegna slíkra byrða þurftu mörg börn að hætta í skóla á unga aldri.
Peshawar skólinn er staðsettur mitt í þessu samfélagi og leysir þar með helstu áhyggjuefni foreldra, sem gerir þeim kleift að leyfa börnum sínum að hljóta formlega menntun. Flest þessara barna hefðu ekki haft efni á menntun og vegna skólans eru nú mjög margir sem hafa lokið námi og starfa sem kennarar, hjúkrunarfræðingar, bókarar og í öðrum starfsgreinum. Allt er þetta að þakka örlæti styrktaraðila frá Íslandi.
Ég kem úr stórri fjölskyldu og foreldrar mínir höfðu ekki efni á að senda mig og fjögur systkini mín í skóla. Við bjuggum ekki langt frá skólanum í Farooqabad og eftir að foreldrum mínum barst sú vitneskja að börn gætu fengið skólastyrki frá örlátu fólki á Íslandi til...
Nazish
Hjúkrunarfræðingur — Farooqabad skólinn
Eftir að ég lauk grunnskóla í þorpinu mínu virtist draumurinn um áframhaldandi nám óraunhæfur. Ég kem úr sjö systkina hópi og forgangsverkefni foreldra minna var að mæta daglegum þörfum heimilisins, ekki að greiða fyrir menntun okkar. Hversu dökkt sem útlitið var hélt ég áfram að vona að eitthvað...
Najma
Gjaldkeri og meistaranemi — Machike heimavistarskólinn
Skólinn stendur í miðju þorpinu og þjónar fjölskyldum sem búa við kröpp kjör. Tæplega 150 nemendur stunda þar nám.
Í einni af stærstu borgum Pakistans þjónar skólinn um 200 börnum úr samfélögum þar sem meirihluti fjölskyldna lifir undir fátæktarmörkum.
Skólinn var byggður fyrir fé sem kennarar, starfsfólk og nemendur Borgarholtsskóla söfnuðu, og þjónar nokkrum þorpum í útjaðri borgarinnar.